| Svava's profileSvava og Binni í Rotterd...PhotosBlogLists | Help |
Svava og Binni í Rotterdam |
||||
|
November 28 Heimsókn Ástu, Birgis og GuðrúnarÁsta, Birgir og Guðrún heimsóttu okkur frá og með 22. til 26. nóvember sl. Dagarnir liðu fljótt enda margt að gera, þ.á.m. smakka góðan bjór, fara upp í Euromast, sigla með Pönnukökuskipinu upp Maas, borða á veitingahúsum, fara á Locus Publicus, heimsækja dýragarðinn í Rotterdam, borða danskar pönnukökur og auðvitað .... verzla. Myndir og lýsingu má nálgast hér. Alles beweegt! listasýningUm daginn sóttum við þrjár listasýningar í Kunsthal (listasafn hér í Rotterdam); "Meester van Montmartre" málverkasýning eftir Steinlen, "Alles beweegt!" nýmóðins listasýning eftir Tinguely, og "150 jaar Gemeentearchief Rotterdam" auglýsingasýning. Alles beweegt! var aðalsýningin og samanstóð hún af listaverkum sem innihéldu nánast eingöngu járnrusl sem hreyfðist með skipulögðum hætti. Athyglisverð sýning svo ekki verði meira sagt, og myndirnar má sjá hér. November 17 Heimsókn Sigurdísar, bjórprófessorinn og kisiMargt hefur drifið á daga okkar hér í Rotterdam undanfarið. Í byrjun nóvember fórum við í bjórsmökkun hjá bjórprófessornum og partý með alþjóðlegu þema hjá Rúnu í Delft. Fyrir herlegheitin buðu Árni og Lína okkur í mat heima hjá Árna. Sjá myndir hér.
Í vikunni á eftir kom Sigurdís í heimsókn til okkar. Það var frábært að fá hana. Fórum við m.a. á pönnukökubátinn, í öfluga verslunarferð á Beurs og út að skemmta okkur. Sigurdís fór síðan til Amsterdam og gisti eina nótt þar hjá vinum sínum. Myndir frá heimsókn hennar má sjá hér.
Um daginn fórum við á Locus Publicus, bar sem sérhæfir sig í special bjórum, og hittum við kisuna sem á heima þar. Myndir segja meira. October 27 Rakarinn óheppniÍ Rotterdam vex manni hárið líkt og heima á Íslandi, hvort sem það er hárið á bakinu eða á kollinum. Leiddi það til þess að Binni þurfti að hefja leit að rakara með þá sérkunnáttu að snyrta íslenskt hár. Sú leit leiddi ekki til neins nema þreytu í hnjám og síðara hárs. Ákvað Binni því að stinga nefinu inn á næstu hársnyrtistofu sem á vegi hans varð. Virtist stofan vera alvörunni, og sjaldgjæf sjón í dag, rakarastofa. Rakarinn brosti blítt við komu Binna og bauð honum sæti. Gekk klippingin vel og reyndist rakarinn kunnugur til Íslands og spurði hvort ekki væru bara moldarvegir á Íslandi. Lísti hann áhuga sínum á að heimsækja Ísland. Allt gekk þetta vel, eða þangað til hann gaf Binna nafnskírteinið sitt. Meðfylgjandi er mynd af nafnskírteininu hans, og ekki getur annað sagst en að maður vorkennir honum fyrir nafngiftina. Binni ætlar að sækja hársnyrtingu til hans á ný, enda getur ekki verið að viðskiptin gangi neitt alltof vel hjá honum með þetta nafn.
Nýr dagskrárliðurNú hefur splunkunýjum dagskrárlið verið bætt við síðuna, bjórsmökkunarmyndaalbúm. Verður nýjum tegundum bætt við í albúmið jafn óðum.
Albúmið má nálgast með að ýta hér. |
|
|||
|
|